Námskeið í sölustjórnun

21.1.2010


20. og 21. janúar 2010


Markvisst sölustarf er hverju fyrirtæki nauðsynlegt. Þjálfun sölumanna skiptir þar miklu. Ekki er síður mikilvægt að hugað sé vel að stjórnun sölu með markmiðasetningu, öruggri framkvæmd sölustefnu og markvissri eftirfylgni.


Námskeið í sölustjórnun verður haldið miðvikudaginn 17. og fimmtudaginn 18. febrúar kl. 8:30 - 11:30 með Bjarna Þór Þórólfssyni. Mikil aðsókn var á fyrra námskeiðið og færri komust að en vildu.


Hentar m.a.
fyrir sölu- og markaðsfólk.

Dagskrá: 

Kennari/leiðbeinandi:  Bjarni Þór Þórólfsson. Hann er með M.Sc. í stjórnun og markaðfræði frá Copenhagen Business School. Bjarni er útibússtjóri hjá Byr sparisjóði. Hann starfaði áður sem forstöðumaður hjá GoPro-Landsteinum á Navision-skrifstofum fyrirtækisins í Danmörku og Þýskalandi og stýrði þá m.a. teymum sölu- og markaðsfólks. Hann hefur stundað kennslu á vegum Byr sparisjóðs og kennt við HR og HA.
Tími:  17. og 18. febrúar (miðvikudagur og fimmtudagur  2x3 klst.) kl. 8.30- 11.30
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Verð:  
kr. 12.900,- (kr. 6.450,- greiddar úr Starfsmenntasjóðnum*)
Skráning
:  linda@fis.is

 

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá FÍS ef stigaeign er fyrir hendi.

 


Til baka