Sölu- og þjónustunámskeið - Að gera sitt besta á hverjum degi

20.1.2010


Þriðjudaginn 16. febrúar kl. 8:30 - 11:30

Árangur í sölumennsku og nútíma sölutækni byggja á því að seljandinn sé virkur og geri sér grein fyrir því að árangur hans er undir honum sjálfum kominn, ekki viðskiptavininum eða fyrirtækinu sem hann vinnur hjá. Viðskiptavinir vilja ekki láta selja sér en þeir vilja gjarnan kaupa.  Sölufólk selur ekki aðeins vörur og þjónustu heldur líka viðhorf og trú á framtíðina. Góður sölumaður er alltaf í "stuði", trúir á sjálfan sig og þá vöru eða þjónustu sem hann selur viðskiptavinunum. Þetta á ekki síst við þegar þeir eru með vindinn í fangið. Kynntar verða nýjar hugmyndir í sölumennsku og þjónustu við viðskiptavini.

Meðal þess sem tekið verður fyrir er:

Námskeið fyrir þá sem starfa við sölu og sölutengda þjónustu í fyrirtækjum


Leiðbeinandi:
Gísli Blöndal. Gísli býr yfir 20 ára reynslu í námskeiðhaldi og 40 ára reynslu í sölu og þjónustu. Hann hefur starfað sjálfstætt sem ráðgjafi, námskeiðshaldari og fyrirlesari jafnframt því að annast almenningstengsl og ýmis átaksverkefni. Hann hefur m.a. leiðbeint á námskeiðum hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, Símennt, Leiðtogaskólanum og fjölda fyrirtækja og stofnana. Gísli er þekktur fyrir létta og hressilega framgöngu og talar hann gjarnan tæpitungulaust um menn og málefni.

Tími: 16. febrúar (fimmtudagur) kl. 8:30 - 11:30.

Verð: kr. 5.900,- (kr. 2.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

 

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign er fyrir hendi.

 


Til baka