Markaðssetning á krepputímum og breytingar á neytendahegðun: Tækifæri og ógnanir

9.2.2010


Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8:30 - 11:30.


Námskeiðið fjallar um það hvernig best er að nota mismunandi markaðsboðleiðir til að skila fyrirtækjum sem mestu í formi hagnaðar - til dæmis í formi söluaukningar, varðveislu á markaðshlutdeild eða til verndunar á söluverði. Farið verður í hvernig best er að haga markaðsmálum á krepputímum, hvar skynsamlegt getur verið að skera niður fjármagn og hvar ekki. Einblínt verður á fyrirtæki í verslun, svo sem eins og heildsölu, smásölu, inn- og útflutningi.

 

Leiðbeinandi Dr. Valdimar Sigurðsson, Nova dósent í markaðsfræði og forstöðumaður rannsókna og doktorsnáms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Valdimar er með doktorspróf (Ph.D.) í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði frá Cardiff University, Bretlandi. 
Tími: 25. febrúar (fimmtudagur) kl. 8:30 - 11:30.
Verð: kr. 7.900,- (kr. 3.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign er fyrir hendi.

 

 


Til baka