Námskeið í sölustjórnun

24.2.2010


Markvisst sölustarf er hverju fyrirtæki nauðsynlegt. Þjálfun sölumanna skiptir þar miklu. Ekki er síður mikilvægt að hugað sé vel að stjórnun sölu með markmiðasetningu, öruggri framkvæmd sölustefnu og markvissri eftirfylgni.


Námskeið í sölustjórnun verður haldið 15. og 16. apríl 2010 kl. 8:30 - 11:30 með Bjarna Þór Þórólfssyni. Mikil aðsókn hefur verið á fyrri námskeiðin og færri komist að en vildu.


Hentar m.a.
fyrir sölu- og markaðsfólk.


 

Farið verður m.a. yfir eftirfarandi:

Kennari/leiðbeinandi:  Bjarni Þór Þórólfsson.  Bjarni er fjármálastjóri Reykjavík Geothermal. Starfaði áður sem útibússtjóri hjá Byr sparisjóði og sem forstöðumaður hjá GoPro-Landsteinum á Navision-skrifstofum fyrirtækisins í Danmörku og Þýskalandi og stýrði þá m.a. teymum sölu- og markaðsfólks. Hann er með M.Sc. í stjórnun og markaðfræði frá Copenhagen Business School og hefur stundað kennslu á vegum Byr sparisjóðs og kennt við HR og HA.


Tími:  15. og 16. apríl (fimmtudagur og föstudagur  2x3 klst.) kl. 8.30- 11.30
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Verð:  
kr. 12.900,- (kr. 6.450,- greiddar úr Starfsmenntasjóðnum*)
Skráning
:  linda@atvinnurekendur.is

 

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.

 


Til baka