Innkaupastjórnun
23.2.2010
Miðvikudaginn 14. apríl kl. 8:30 - 11:30.
Kynntar verða nýjungar í innkaupafræðum, farið yfir ýmis atriði tengd innkaupastjórnun fyrirtækja og hvers vegna mikilvægt sé að veita innkaupastjórnun aukið vægi í rekstrarumhverfi dagsins í dag. Fjallað verður um það hvernig innkaupafólk getur undirbúið ákvarðanir sínar betur, sparað kostnað og bætt nýtingu fjármagns. Einnig verður fjallað um mikilvægi þess að byggja upp gott langtímasamband við birgja. Komið verður inn á stjórnun aðfangakeðjunnar og helstu strauma og stefnur á því sviði.
Leiðbeinandi: Thomas Möller, stundakennari í Vörustjórnun við Viðskiptadeild HR og framkvæmdastjóri RÝMIS ehf.
Verð: kr. 7.900,- (kr. 3.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@atvinnurekendur.is
*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.