Breytingastjórnun

22.2.2010


Fimmtudaginn 18. mars kl. 8:30 - 11:30.


Fjallað verður um helstu þætti sem hafa áhrif á starfsanda fyrirtækja í breytingaferli, bæði frá fræðilegu og verklegu sjónarhorni. Markmið námskeiðsins er að stjórnendur öðlist skilning á mismunandi viðbrögðum starfsmanna; farið er rækilega í mikilvægi viðhorfa til breytinga almennt og á vinnustað. Meðal efnisatriða námskeiðsins er leiðtogahæfni í eigin lífi, breytingastjórnun, persónuleikamat og kynning á Meyers-Brigg persónuleikaprófinu, þar sem sérstaklega er fjallað um kenningu um mismunandi viðhorf til breytinga, sem prófið byggir á. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, verkefna og umræðu.

Ætlað stjórnendum, starfsmannastjórum, sérfræðingum í mannauðsstjórnun og öðrum sem bera ábyrgð á breytingarferli innan fyrirtækja og stofnana.

Leiðbeinandi
: Árelía Guðmundsdóttir, dósent við viðskiptafræðideild HÍ
Árelía Guðmundsdóttir

Verð: kr. 9.500,- (kr. 4.750,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning:
linda@atvinnurekendur.is

 

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.

 


Til baka