Eru kúlulán hættuleg? - Vaxtaútreikningar og skuldabréf
25.2.2010
Þriðjudaginn 20. apríl kl. 8:30 - 11:00 verður haldið námskeiðið „Eru kúlulán hættuleg? - Vaxtaútreikningar og skuldabréf".
Farið verður yfir helstu aðferðir við vaxtaútreikninga og áhrif verðtryggingar skoðuð. Helstu tegundir skuldabréfa verða kynntar og hvað mismunandi vextir þýða í mismunandi gjaldmiðlum. Áhersla verður lögð á að tengja umfjöllun við rekstur fyrirtækja og einnig heimilisbókhaldið.
Hentar öllum sem ekki vinna með vexti og skuldabréf í hverri viku.
Leiðbeinandi: Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Almar hefur B.s. gráðu í hagfræði frá HÍ og MBA gráðu frá London Business School. Hann starfaði um langt skeið hjá Íslandsbanka. Hann sinnir stundakennslu við Háskólann í Reykjavík, þar sem viðfangsefnin eru fjármálafræði.
Tími: 20. apríl, þriðjudagur kl. 8:30 - 11:00
Verð: kr. 6.500,- (kr. 3.250,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@atvinnurekendur.is
*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.