Vel heppnaður fundur um skattamál og breytta neysluhegðun

8.12.2009


Í morgun stóðu FÍS og VR fyrir opnum fundi þar sem fjallað var um skattamál og breytta neysluhegðun í kjölfar efnahagssamdráttar. Á fundinum var m.a. kynnt ný könnun Capacent Gallup á viðhorfi almennings til skattkerfisbreytinga og áhrif þeirra á neyslu. Könnunin var unnin fyrir FÍS.

 

Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Capacent fór yfir niðurstöður umræddrar könnunar en fjallaði einnig um breytta neysluhegðun útfrá gögnum AC Nielsen um smásölu. Axel Hall, lektor við Háskólann í Reykjavík, fjallaði um tekjuskattsbreytingar og áhrif þeirra á framboð og eftirspurn. Hann gerði m.a. grein fyrir samanburði á boðuðu tekjuskattskerfi hér og tekjuskattskerfum á Norðurlöndum. Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, og Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍS, fylgdu svo í kjölfarið og fóru yfir skattamálin út frá sjónarmiði sinna samtaka.

 

Fundurinn var vel sóttur og voru fundargestir almennt ánægðir með hann. Ljóst er að margt sem kom fram á fundinum á mikið erindi í umræður á Alþingi um breytingar á skattalögum. Þeim umræðum mun ljúka nú fyrir jólin.

 

Glærur með fyrirlestrum af fundinum má finna hér að neðan.

Hvað finnst almenningi um skattabreytingar? Hvernig hefur neysluhegðun breyst?
Einar Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Capacent Gallup


Áhrif tekjuskattsbreytinga á framboð og eftirspurn.
Axel Hall, lektor við Háskólann í Reykjavík


Skattabreytingar frá Sjónarhóli VR.
Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR


Skila hærri skattar sér í auknum tekjum ríkissjóðs?
Hver verða áhrif hækkunar skatta á fyrirtæki?
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍS

 

File18File10


Til baka