Umboðsmaður Alþingis telur gjaldskrá Lyfjastofnunar ekki vera í samræmi við lög
9.12.2009
FÍS skorar á stjórnvöld að styrkja fjárhagslegan grundvöll Lyfjastofnunar
Hinn 12. desember 2008 lagði FÍS fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna gjaldskrár Lyfjastofnunar. Umboðsmaður Alþingis hefur nú gefið álit sitt í málinu.
Niðurstaðan er í stuttu máli sú að heilbrigðisráðherra hafi ekki sýnt fram á að gjaldskráin sem kvartað var yfir hafi verið reist á fullnægjandi grundvelli og málefnalegum sjónarmiðum. Setning gjaldskrár Lyfjastofnunar var því, að mati umboðsmanns Alþingis, ekki í samræmi við lög. Í stuttu máli má segja að umboðsmaður Alþingis hafi fallist í einu og öllu á sjónarmið FÍS í þessu máli.
Niðurstaðan umboðsmanns Alþingis minnir óþægilega á þann þrönga stakk sem fjármálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið hafa sniðið Lyfjastofnun. Í því sambandi verður að leggja til grundvallar þá staðreynd að Lyfjastofnun sinnir mikilvægu hlutverki á lyfjamarkaði og í íslensku samfélagi. Það er því mikilvægt að fjárhagslegur grundvöllur stofnunarinnar sé traustur. Forsendan fyrir því að svo megi vera er að lögbundin verkefni hennar séu vel afmörkuð og gjaldtaka fyrir þau verkefni skýr þannig að einkafyrirtæki gæti borðið þann kostnað sem á þau stendur.
FÍS og Lyfjastofnun hafa tekist á um margt í gegnum tíðina. Eitt af því sem þessir aðilar eru hins vegar sammála um er að innan Lyfjastofnunar starfar hópur sérfræðinga sem vinnur mikilvæg og krefjandi verkefni sem varða miklar tekjur fyrir íslenskt þjóðarbú. Mikilvægt er að standa vörð um þetta starfsfólk og störf þeirra.
Í framhaldi af áliti umboðsmanns Alþingis skorar FÍS því á viðkomandi ráðuneyti að treysta fjárhagslegan grundvöll Lyfjastofnunar þannig að stofnunin geti sinnt lögbundnum skyldum sínum. Þar verða stjórnvöld að afmarka með skýrum hætti hlutverk stofnunarinnar og sjá til þess að þeir sem nýti sér þjónustu stofnunarinnar beri raun kostnaðinn af henni. Slík aðgerð er til þess fallin að auka öryggi almennings, fjölga lyfjum og stuðla að aukinni samkeppni.