Af vettvangi Evrópudómstólsins - viðskipti innherja og markaðsmisnotkun

8.1.2010


Í niðurstöðu Evrópudómstólsins máli C-45/08 frá 23. desember 2009 eru til umfjöllunar samevrópskar reglur um viðskipti innherja.

 

Tilskipun 2003/6 fjallar um viðskipti innherja og markaðsmisnotkun. Henni er ætlað að vinna gegn innherja svikum og markaðsmisnotkun með það að markmiði að verja trúverðugleika fjármálamarkaða og stuðla að auknu trausti fjárfesta.

 

Tildrög málsins eru þau að belgíska fyrirtækið S keypti eigin bréf á verðbréfamarkaði. Stuttu síðar birti félagið niðurstöður og upplýsingar er vörðuðu fjárfestingarstefnu félagsins. Í framhaldi hækkaði gengi bréfa félagsins. Fyrir vikið var félagið sektað um 80.000 evrur og framkvæmdastjóri þess um 20.000 evrur. Umræddir aðilar fóru með þá niðurstöðu fyrir dóm. Í því dómsmáli var leitað álits Evrópudómastólsins með það að markmiði að skýra betur ákvæði tilskipunar 2003/6 um viðskipti innherja.

 

Dómstóllinn komst m.a. að þeirri niðurstöðu að skilyrði tilskipunar 2003/6 um innherjaviðskipti væru hlutlæg og skipti því engu sú huglæga afstaða sem býr að baki tilteknum viðskiptum. Í því fælist að þegar fyrir liggja ákveðnar upplýsingar væri innherja fortakslaust óheimilt að eiga viðskipti með þá fjármálagerninga sem tengjast umræddum upplýsingum. Þá ættu reglur tilskipunarinnar um innherja viðskipti ekki einungis beint við ákveðna fjármálagerninga, svo sem hlutabréf, heldur einnig afleidda gerninga sem endurspegla gengi þeirra, t.d. afleiður og skuldabréf.

 

Dómstóllin benti hins vegar á að það væri skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins að umræddar upplýsingar væru til þess fallnar að hafa áhrif á verð fjármálagerninga. Það er hins vegar ekki skilyrði, að mati dómsins, að umræddar upplýsingar hafi haft slík áhrif.


Til baka