Samstaða stjórnmálaflokka í Icesave málinu fagnaðarefni!
18.1.2010
Á laugardag sendi stjórn FÍS frá sér ályktun vegna Icesave málsins. Þar er því fagnað sérstaklega að meiri samstaða virðist vera að nást um afstöðu gagnvart viðsemjendum Íslands í málinu. Fréttatilkynninguna má sjá í heild sinni hér að neðan og einnig hér.
Samstaða stjórnmálaflokka í Icesave málinu fagnaðarefni!
Vinna þarf hratt - umbótaverkefni og atvinnusköpun þola ekki bið
Stjórn FÍS fagnar því að samstaða virðist vera nást meðal stjórnmálaflokka um afstöðu gagnvart viðsemjendum Íslands í Icesave málinu. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að Ísland hafi eina rödd í málinu og að óvissu í kringum málið linni sem allra fyrst. Það er grundvallaratriði að heildarhagsmunir þjóðarinnar ráði för - en ekki pólitískir hagsmunir einstakra flokka. Í því felst að Íslendingar umgangist skuldbindingar sínar af ábyrgð, réttindi sín af festu en sýni umfram allt samstöðu í sinni framgöngu.
Stjórn FÍS telur nauðsynlegt að stjórnmálamenn nálgist fleiri mikilvæg mál með samstöðu að leiðarljósi. Ástandið í atvinnulífinu er grafalvarlegt og að óbreyttu mun það versna. Nú þarf samstöðu um nauðsynleg umbótaverkefni og atvinnusköpun.
Reykjavík, 16. janúar 2010,
Stjórn FÍS