FÍS verður Félag atvinnurekenda
12.2.2010
Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS) samþykkti að breyta nafni félagsins í Félag atvinnurekenda. „Nýtt nafn í takt við nýja tíma" sagði formaðurinn á fundinum.
Aðalfundur Félags atvinnurekenda var haldinn í gær, 11. febrúar í Húsi verslunarinnar og stóð fram eftir kvöldi. Samþykkt var á fundinum, eftir miklar umræður, að breyta nafni félagsins úr Félag íslenskra stórkaupmanna í Félag atvinnurekenda. Helsta ástæða nafnabreytingarinnar er að hugtakið stórkaupmaður er orðið sjaldgæft í íslenskri málnotkun. Þörf hafi verið á nafni sem hefði breiðari skírskotun og væri lýsandi fyrir þau fyrirtæki sem eru aðilar að félaginu í dag. Félagið mun hér eftir sem hingað til vera málsvari verslunar og milliríkjaviðskipta - með áherslu á að minni og meðalstór fyrirtæki verði áfram undirstaða hagsældar í landinu.
Formaður Félags atvinnurekenda segir að leysa þurfi vandamál heimilanna til að ýta undir eftirspurn -
atvinnurekendur finna fyrir því að heimilin eru í gíslingu
- Samningsstaða heimila með erlend íbúðalán er of veik. Pólitíska ákvörðun þarf til að losa heimilin úr gíslingu. Þannig má ýta undir eftirspurn.
- Auknar álögur þrengja mjög að litlum- og meðalstórum fyrirtækjum. Launatengd gjöld eru að nálgast fjórðung af launakostnaði.
- Atvinnurekendur hræðast mögulega mismunun í skuldameðferð einstakra fyrirtækja. Skapa þarf traust á verklagi fjármálastofnana í slíkum málum.
Í ræðu sem hún flutti á aðalfundinum sagði Margrét Guðmundsdóttir, formaður félagsins, stöðu efnahagsmála á Íslandi nú um stundir vera erfiða. Algjört hrun hafi orðið í eftirspurn og fyrirtæki sem vinni á innlendum markaði hafi þurft að laga sig að því. Áhyggjuefni sé að einkaneysla - drifkraftur verslunar og þjónustustarfsemi - sé ekki að taka við sér. Fyrirtækin í landinu - ekki síst þau litlu og meðalstóru - hafi þurft að hagræða og sýna útsjónarsemi. Því miður sé afleiðingin stóraukið atvinnuleysi - sem ekki megi verða viðvarandi.
Margrét Guðmundsdóttir sagði:
„Við þurfum kjark, bjartsýni - og ekki síst samstillt átak þjóðarinnar - til að rífa okkur upp úr hjólförunum. Það er í höndum okkar atvinnurekenda að koma á styrkari umgjörð um viðskiptalíf á Íslandi. Félag atvinnurekenda hefur alltaf og mun áfram beita sér fyrir heilbrigðum viðskiptaháttum og réttlátum leikreglum í samkeppni."
Frekari upplýsingar veita Margrét Guðmundsdóttir formaður í s. 821-8002 og Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri í s. 618-2898