Bankarnir ógna samkeppni

8.3.2010


Nýtt frumvarp viðskiptaráðherra um lög um fjármálafyrirtæki setur bönkum ekki nægilega skýr skilyrði varðandi eignarhald fyrirtækja 

 

               

Félag atvinnurekenda (FA) gagnrýnir nýtt frumvarp viðskiptaráðherra og telur að verði það að lögum þá fái bankarnir frítt spil á næstu árum. Frumvarpið tekur til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki og hefur það verið í smíðum í viðskiptaráðuneytinu í tæpt ár. Í áliti sem FA hefur skilað til viðskiptanefndar Alþingis er gagnrýnt að í frumvarpinu sé fátt sem takmarki hversu lengi bankarnir geti átt fyrirtæki í atvinnurekstri eða hvenær þau skuli seld. Nauðsynlegt sé að setja bönkunum mun þrengri ramma um inngrip í samkeppnismarkaði.

 

Í verklagsreglum fjármálafyrirtækja er sagt að „stefna skal að því að selja eignarhluti í fyrirtækjum eins fljótt og hagkvæmt er."  Þetta orðalag er ekki  fullnægjandi. Óeðlilegt er að hagkvæmnissjónarmið banka séu sett ofar öðrum sjónarmiðum. Almannahagsmunir hljóta að þurfa að koma þarna til álita - helst með skýrum leikreglum sem sett eru af stjórnvöldum. Samkeppniseftirlitið hefur í auknum mæli sett bönkum takmarkanir vegna eignarhalds í fyrirtækjum. Mikilvægt er að Samkeppniseftirlitið fái auknar heimildir til að fylgja slíkum málum eftir.

 

Almar Guðmundsson:
„Félagsmenn í Félagi atvinnurekenda eru mjög uggandi vegna þessa máls. Þeir telja að ríkisstjórnin hafi lofað að standa vörð um samkeppni. Eðlilegast sé að fyrirtæki í eigu bankanna séu seld í opnu og gagnsæju ferli og tryggt sé með lögum að hlutverk bankanna sé að lána íslensku atvinnulífi - en ekki reka það. Reynslan af hinu síðarnefnda er slæm."

 

Frekari upplýsingar veitir:
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda í s. 618-2898

 

Fréttatilkynning frá Félagi atvinnurekenda


Til baka