Fjárfestingarsjóður Stórkaupmanna

Síðasta ár var 39. Starfsár Fjárfestingarsjóðs stórkaupmanna, en sjóðurinn var stofnaður 22. október árið 1970.
Starfssemi sjóðsins er nú gjörbreytt frá því sem áður var þegar lánastarfsemi úr eigin sjóðum og ávöxtun eigna sjóðsins var megin viðfangsefni hans. Ástæðan er að árið 2007 var ákveðið að draga verulega úr starfsemi sjóðsins með því að greiða út inneignir sjóðsfélaga og þar með allt ráðstöfunarfé sjóðsins. Sjóðurinn hefur þó enn því mikilvæga hlutverki að gegna að veita lán til sjóðsfélaga og annarra félagsmanna FÍS úr Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Nokkuð hefur þó dregið úr þessum lánveitingum í seinni tíð. Megin ástæðan fyrir því er að lög um lánveitingar lífeyrissjóða setja lífeyrissjóðum mjög þröngar skorður um veðsetningu fasteigna. Þó verður að telja lán þessi hagstæð.
Nokkur umræða hefur verið um það undanfarin ár hvort finna megi sjóðnum eitthvert nýtt hlutverk eða verkefni. Þannig stóð sjóðurinn að undirbúningi fyrir þátttöku félagsmanna í fjárfestingu í fasteignum í Þýskalandi. Þau áform fóru þó út um þúfur við hrun íslenska bankakerfisins. Frekari umræða um þessi mál hefur legið niðri vegna hrunsins. Stjórn sjóðsins óskar eftir hugmyndum frá félagsmönnum um önnur slík verkefni þar sem hægt væri að nýta samtakamátt félagsmanna til góðra verka.
Aðalfundur Fjárfestingarsjóðs stórkaupmanna verður haldinn föstudaginn 26. febrúar nk.
Formaður Fjárfestingarsjóðs stórkaupmanna er Stefán S. Guðjónsson. Með honum í stjórn eru Benedikt E. Gunnarsson varaformaður, Arnar R. Birgisson, Jón G. Baldvinsson og Ólafur Ó. Johnson.