Félag atvinnurekenda


Félag atvinnurekenda eru hagsmunasamtök lítilla sem stórra fyrirtækja í inn- og útflutningi, heildsölu og smásölu. Félagið hefur verið framvörður heilbrigðra verslunarhátta í 82 ár. Það hefur ætíð beitt sér fyrir réttlátum leikreglum í samkeppni og að efla hag viðskipta og verslunar á Íslandi. Stærsti hluti aðildarfélaga eru lítil og meðalstór fyrirtæki í verslun og milliríkjaviðskiptum. Flest eru í sjálfstæðum rekstri sem einkennist oft af því að eigendur reka þau sjálfir.  

 

Félag atvinnurekenda:

Nafnið Félag atvinnurekenda endurspeglar fyrirtækin sem eru félagið.