Framundan eru mörg áhugaverð námskeið hjá FÍS - kynntu þér málið!

 

Minnum á að þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá FÍS ef stigaeign er fyrir hendi.

  
 

DESEMBER


Streitunámskeið frá Streituskólanum
Miðvikudaginn 2. desember kl. 8:30 - 9:40
Streita, álag og áföll hafa veruleg áhrif á líðan og heilsu. Um þessar mundir eiga margir um sárt að binda í samfélaginu og öll þekkjum við einhvern sem við höfum áhyggjur af eða viljum styðja.

Efni fyrirlestrar er:

Fyrirlesari: Dr. Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og ráðgjafi í geðheilsueflingu hjá Forvörnum ehf.

Tími: 8:30 - 9:40

Verð: kr. 3000,- (kr. 1500,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

Hádegisfyrirlestur á léttu nótunum
Þriðjudaginn 15. desember kl. 12:00 - 13.00
- nánar auglýst síðar

 
FÍS hefur gert samstarfssamninga við eftirtalin fyrirtæki:


Tölvuskólinn iSoft - þekking: Félagsmenn fá 10% afslátt af tölvu- og bókhaldsnámskeiðum og 5% afslátt af öðrum námskeiðum skólans.Sjá nánar um námskeið: http://www.isoft.is


Nemandi.is - fjarnám : Félagsmenn fá 30% afslátt af öllum námskeiðum. Tölvur og tölvunotkun eru netnámskeið sem kenna byrjendum og lengra komnum á tölvur og ýmis tölvuforrit. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi undir öruggri leiðsögn kennara, Bjartmars Kristinssonar, sem veitir aðstoð í gegnum þjónustusíma sem er opinn 9-21 alla virka daga meðan á námskeiðunum stendur. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir og er að auki kjörin leið fyrir þá sem ekki geta sótt löng námskeið og hentar að geta stundað nám að heiman eða af vinnustað. Sjá nánar: http://www.nemandi.is/


Tölvu- og verkfræðiþjónustan eh
f.: Félagsmenn fá:

 

Dale Carnegie

FÍS og Leiðtogaþjálfun ehf. hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu um samstarf á sviði þjálfunar og námskeiða fyrir fyrirtæki innan FÍS og starfsmenn þeirra.

Yfirlýsingin felur í sér að Dale Carnegie á Íslandi getur boðið fyrirtækjum, sem eru félagar í FÍS, námskeið og þjálfun af ýmsu toga á 20% afslætti.

 Námskeið í Excel I  - almenn töflureikningsnotkun.


Dags.    28. september -  2. október                 kl. 13:00 - 16:00
            12. september  - 16. september           kl.   9:00 - 12:00
             4. nóvember  - 18. nóvember             kl. 19:30 - 22:30

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja fá hámarksafnot af tölvunni við meðhöndlun talna. Alls konar útreikningar og úrvinnsla talna verða leikur einn að loknu námskeiði.

Námskeiðið er ætlað jafnt byrjendum sem lengra komnum. Þeir sem fyrst og fremst hafa notað Excel til uppsetningar á töflum og til einfaldra útreikninga munu bæta verulega við þekkingu sína á þessu námskeiði. Nánari dagskrá er hægt að sjá á vef TV hér

Verð: kr. 22.520,- með 20% afslætti (kr. 10.760,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið hjá Tölvu - og verkfræðistofunni Grensásvegi 16
Skráning: halldor@tv.is
Vinsamlegat takið fram við skráningu að fyrirtækið sé í FÍS


 

Eftirtöldum námskeiðum er lokið:

 



SEPTEMBER


„Pepp" fyrirlestur
Miðvikudaginn 2. september kl. 10:30 - 11:30 verður haldinn „pepp" fyrirlestur. Stuttur fyrirlestur um auknar kröfur til árangurs og jákvætt viðhorf á vinnustað (Yes! Attitude). Fyrirlesturinn er í léttum tón og aðalmarkmiðið er að skapa léttleika, jákvæðni og skapandi kraft.


Öll íslensk fyrirtæki ganga nú í gegnum þrengingar, niðurskurð og erfiða tíma. Starfsfólki þeirra eru fengin verkefni þar sem þeim er ætlað að takast á við breytt ástand og meiri kröfur eru gerðar til árangurs en áður hafa þekkst. Þegar þannig árar er mikilvægt að starfsfólkið fái hvatningu og stuðning sem gagnast því í daglegum verkefnum. Fjallað er um hvernig við getum haft meira ánægju af vinnunni og jákvæðara viðhorf til þess sem við erum að fást við.

 


Leiðbeinandi:  Gísli Blöndal. Gísli er einn af reyndustu fyrirlesurum landsins með yfir 20 ára reynslu að baki. Hann er þekktur fyrir létta og hressilega framgöngu og talar gjarnan tæpitungulaust um menn og málefni.

Tími: 10:30 - 11:30

Verð: kr. 2.500,- (kr. 1.250,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

Að skapa framkvæmdamenningu

Miðvikudaginn 16. september kl. 8:30 - 12:30

  1. Hefur þú einhvern tíma lent í því að taka þátt í stefnumótunarvinnu sem átti að skila miklum árangri en það náðist einungis að framkvæma smá hluta af því sem ætlunin var að gera?
  2. Hefur þú tekið þátt í að gera mjög krefjandi og spennandi áætlun sem var aðeins of áköf og náðist ekki?
  3. Hefur þú lent í því að ráða starfsfólk sem stóð sig mjög vel í atvinnuviðtölunum en var svo eitthvað allt annað þegar á hólminn var komið?

Flestir stjórnendur hafa verið í þessum sporum og skilja oft og tíðum ekki hvers vegna áðurnefndir þættir gengu ekki upp. Hvað er það sem fór úrskeiðis? Farið verður í ofangreindar spurningar og fleiri og reynt að gera sér grein fyrir því hvað fer oftast úrskeiðis og hvernig hægt er að bregðast við. Lögð verður mikil áhersla á að nýta sér spurningar og kafa djúpt með þeim. Farið verður í það hvernig við getum skapað fram-kvæmdamenningu og fengið alla til að vinna að sama markinu.

Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:

Ávinningur:

Kennsluaðferðir:

Leiðbeinandi: Sverrir Ragnarsson. Hann rekur námskeiðs - og ráðgjafafyrirtækið Door Training & Consulting Iceland sem sérhæfir sig m.a. í sölunámskeiðum, þjónustu-námskeiðum og stjórnendanámskeiðum. Sverrir vinnur við þjálfun stjórnenda og starfs-manna á vegum Door International m.a. hjá Sony, Microsoft og Philip Moris í Evrópu.

Tími: 8:30 - 12:30

Verð: kr. 9.900,- (kr. 4.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

Lækkum kostnað og bætum þjónustu með betri tölvupóstum
Fimmtudaginn 24. september kl. 8:30 - 9:30

Tölvupóstsamskipti koma í vaxandi mæli í stað annarra samskiptaforma. Stundum hittum við þá aldrei viðskiptavini okkar né heyrum í þeim. Það verður því sífellt mikilvægara að veita góða þjónustu og skapa jákvæða ímynd í tölvupóstsamskiptum. Tölvupóstur eru því oftar en áður andlit fyrirtækis út á við. Fæst höfum við hinsvegar haft tækifæri til að læra hvernig hægt er að veita framúrskarandi þjónustu með þessum miðli.


MARKMIÐ:


Leiðbeinandi: Margrét Reynisdóttur hjá Gerum betur ehf. Margrét er þaulvön námskeiðahaldi og ráðgjöf. Hún hefur starfað fyrir fjölmörg fyrirtæki, bæjarfélög og stofnanir af ýmsum toga. Hún skrifaði ritið "Þjónustugæði: Samkeppnisforskot og velgengni" árið 2006 og gaf út á síðasta út ári bókina: Þjónusta - fjöregg viðskiptalífsins" sem er fyrsta íslenska bókin um þjónustu. Margrét er með M.Sc. í stjórnun og stefnumótun frá Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði frá University of Strathclyde í Glasgow.
Tími: 8:30 - 9:30
Verð: kr. 2.500,- (kr. 1.250,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is


Námskeið á sviði stjórnsýsluréttar
Fimmtudaginn 1. október 2009
kl. 8:30 - 11:00 

Um leið og starfsemi hins opinbera verður viðameiri verður mikilvægara en nokkru sinni fyrr að aðilar séu meðvitaðir um rétt sinn í samskiptum við stjórnvöld. Á þessu námskeið verður farið yfir þær meginreglur sem gilda í samskiptum fyrirtækja við stjórnvöld og þau atriði sem sérstaklega þarf að hafa auga með. Markmið námskeiðsins er að gera stafsmönnum fyrirtækja kleift að koma fljótt og örugglega auga á annmarka á stjórnsýsluframkvæmd. Þar með ættu fyrirtæki að vera betur í stakk búinn til að takast á við þau verkefni sem framundan eru

Leiðbeinandi:
Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, hdl, lögmaður FÍS

Tími: 8:30 - 11:00
Verð: kr. 6.500,- (kr. 3.250- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

OKTÓBER

 


 Forysta í „krísu"
Miðvikudaginn 14. október kl. 9:00 - 12:00
Fjallað er um mikilvægi sjálfsþekkingar fyrir leiðtoga og rætt um það hvernig hæfni og áhrifamáttur leiðtoga tengist breytingarferlum og teymisvinnu, ekki síst núna þegar leiðtogar þurfa að leita nýrra leiða til að ná árangri innan fyrirtækja og stofnana. Efnahagshrun á Íslandi, sem og annars staðar, má að einhverju leiti rekja til einsleitrar forystu. Á þessu námskeiði er farið í hvaða leiðir eru vænlegar í forystu þegar krísa steðjar að. Markmið námskeiðsins er að leiðtogar öðlist aukna færni í forystu og breytingastjórnun með því að virkja styrkleika sína og þekkja sjálfan sig, auk þess að geta betur skilið sjónarmið og viðbrögð annarra.

Sérstaklega er farið í:

Kennsla/umsjón: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við viðskiptafræðideild HÍ
Tími: 9:00 - 12:00
Verð: kr. 9.900 (kr. 4.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

 Fjárhagsleg endurskipulagning og fjármögnun á erfiðum tímum
Fimmtudaginn 22. október kl. 8:30 - 10:00

Farið verður í gegnum lykilatriði við fjárhagslega endurskipulagningu félaga og gerð grein fyrir fjármögnunarleiðum.  Grundvallaratriði við fjárhagslega endurskipulagningu félaga er ítarleg áætlanagerð sem sýnir hæfni rekstrar til lengri tíma og þar með hvaða  fjárhagsskipan hentar skipulagsheildinni.  Áætlanagerðin leggur grunn að samningum við lánadrottna en um leið þurfa eigendur félaga að gera sér grein fyrir því að nýtt hlutafé getur verið nauðsynlegt til að fá skuldbreytingu. Það gerir það verkum að mikilvægt er að gera sér grein fyrir fjármögnunarleiðum og hvernig nýir fjárfestar geta komið að félagi sem er í fjárhagslegri endurskipulagningu.

Farið verður í gegnum eftirfarandi þætti:

 

Leiðbeinendur: Arnar Bjarnason er verkefnastjóri endurskipulagningar og árangursstjórnunar hjá KPMG. Hann er með B.Sc. í Tæknifræði og MBA frá HÍ. Hann hefur starfað hjá KPMG síðan 2003 að undanskildu árinu 2007. Hann hefur komið að flestum tegundum verkefna hjá KPMG og má í því samhengi nefna endurskipulagningu fyrirtækja, kaup og sölu fyrirtækja, stefnumótun, áreiðanleikakannanir, verðmöt, viðskiptaáætlanir og ýmsar úttektir og ýmis sérhæfð ráðgjafaverkefni. Arnar er með sérstaka áherslu á árangursstjórnun og endurskipulagningu fyrirtækja.

 

H. Ágúst Jóhannesson er meðeigandi KPMG. Hann er sviðsstjóri fyrirtækjasviðs, löggiltur endurskoðandi og Cand Oecon frá HÍ. Hann hefur verið endurskoðandi ýmissa íslenskra fyrirtækja og hóf störf hjá KPMG árið 2000.  Frá árinu 2006 hefur hann verið sviðsstjóri fyrirtækjasviðs og unnið m.a. við fjárhagslega endurskipulagningu ýmissa fyrirtækja.

 

Tími: Fimmtudaginn 22. október kl. 8:30 - 10:00
Verð: kr. 4.900,- (kr. 2.450- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 

Réttur neytanda - ábyrgð seljanda
Miðvikudaginn 28. október kl. 8:30 - 11:00  

Í viðskiptum kemur það stundum fyrir að kaupanda og seljanda greinir á um réttindi aðila og skyldur.  Í slíkum tilfellum er mikilvægt að ná góðum sáttum en grunnurinn að slíkum sáttum er að þekkja vel þær lagalegu skuldbindingar sem liggja til grundvallar.

 

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu meginreglur í lausafjár og neytendakaupum. Þá verður farið yfir úrræði aðila og þau ráð sem seljendum standa til boða til að tryggja stöðu sína.

Leiðbeinandi: Páll Rúnar Mikael Rúnarsson, hdl
Tími: 8:30 - 10:00
Verð: kr. 5.500,- (kr. 2.750,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is

 
Námskeið í Excel II - framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja auka notagildi Excel og nota það við flóknari verkefni. 

Dagana 5.- 8. október kl. 9:00 - 12:00 verður haldið framhaldsnámskeið í Excel. Lögð er áhersla á atriði sem auðvelda og flýta vinnslu með Excel.
Forkröfur: Mikilvægt er að þeir einir sæki námskeiðið sem hafa unnið við eða prófað allt af því sem talið er upp í lýsingu okkar á námskeiðinu Excel I svo námskeiðið nýtist til fulls. Nánari dagskrá er hægt að sjá á með. Slóð á vef TV
Markmið: Að loknu námskeiði á þátttakandinn að verða orðinn mjög fær Excel notandi sem hefur innsýn í alla helstu eiginleika forritsins.
Kennari: Sigurður Jónsson, kerfisfræðingur og Microsoft Office Specialist í Excel - 18 kennslustundir
Tími: 9:00 - 12:00
Verð: kr. 25.600,- með 20% afslætti (kr. 12.800,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið hjá Tölvu - og verkfræðistofunni Grensásvegi 16
Skráning: halldor@tv.is
Vinsamlegat takið fram við skráningu að fyrirtækið sé í FÍS



NÓVEMBER

 

Nýjar hugmyndir í sölumennsku og þjónustu- Að gera sitt besta á hverjum degi

Þriðjudaginn 5. nóvember kl. 8:30 - 11:30

Árangur í sölumennsku og nútíma sölutækni byggja á því að seljandinn sé virkur og geri sér grein fyrir því að árangur hans er undir honum sjálfum kominn, ekki viðskiptavininum eða fyrirtækinu sem hann vinnur hjá. Viðskiptavinir vilja ekki láta selja sér en þeir vilja gjarnan kaupa.  Sölufólk selur ekki aðeins vörur og þjónustu heldur líka viðhorf og trú á framtíðina. Góður sölumaður er alltaf í "stuði", trúir á sjálfan sig og þá vöru eða þjónustu sem hann selur viðskiptavinunum. Þetta á ekki síst við þegar þeir eru með vindinn í fangið. Kynntar verða nýjar hugmyndir í sölumennsku og þjónustu við viðskiptavini.

Meðal þess sem tekið verður fyrir er:

Leiðbeinandi: Gísli Blöndal. Gísli hefur  starfað sjálfstætt sem ráðgjafi, námskeiðshaldari og fyrirlesari jafnframt því að annast almenningstengsl og ýmis átaksverkefni. Hann hefur m.a. leiðbeint á námskeiðum hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, Símennt, Leiðtogaskólanum og fjölda fyrirtækja og stofnana. Gísli er þekktur fyrir létta og hressilega framgöngu og hann talar gjarnan tæpitungulaust um menn og málefni.
Tími: 8:30 - 11:30
Verð: kr. 5.900,- (kr. 2.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is


Verðmat fyrirtækja - ýmsar aðferðir. Hvað þarf að hafa í huga við verðmat og hvað ber að varast?

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 8:30 - 11:00  


Það er því miður of algengt að horft sé á verðmat eins og raunvísindi - en nauðsynlegt er að átta sig á að aðeins lítið frávik í forsendum getur breytt verðmati verulega. Þá skiptir máli að þekkja samhengi ólíkra stærða í verðmati.

 

Farið verður yfir ýmsar aðferðir verðmats. Áhersla verður lögð á að útskýra veikleika þeirra aðferða sem algengastar eru - og þá hvernig hægt er að lágmarka áhrif veikleikanna. Horft verður sérstaklega á fjárbindingu í rekstri hvað varðar birgðir og viðskiptakröfur (e. Working capital) og áhrif þess á verðmat.

 

Lögð er áhersla á opna umræðu og að nýta innsýn þátttakenda.

Meðal atriða:

 


Leiðbeinandi: Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍSAlmar hefur B.s. gráðu í hagfræði frá HÍ og MBA gráðu frá London Business School. Hann starfaði um langt skeið hjá Íslandsbanka, þar sem hann vann m.a. við verðmat fyrirtækja. Hann sinnir stundakennslu við Háskólann í Reykjavík, þar sem viðfangsefnin eru fjármálafræði.
Tími: Þriðjudaginn 10. nóvember  kl. 8:30 - 11.00.
Verð:
kr. 6.500,- (kr. 3.250- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning: linda@fis.is


 

Sölustjórnun fyrir sölu- og markaðsfólk
Dagana 18. og 19. nóvember kl. 8:30 - 11:30

Dagskrá:

- Sölustefna, hvað skiptir máli við stjórnun sölu

- Stjórnun sölutækifæra

- Markmiðasetning, framkvæmd og eftirlit.

- Þjálfun, umbun og hvatning

- Kostnaður við sölu og leiðir sem geta dregið úr kostnaði.

- CRM stjórnun viðskiptatengsla (þróun langtímaviðskiptasambands)

- Solution selling

- Sölufærni

- Skipulag söluteyma

- Hlutverk vefsíðu í sölustarfi

 


Kennari/leiðbeinandi:  Bjarni Þór Þórólfsson. Hann er með M.Sc. í stjórnun og markaðfræði frá Copenhagen Business School. Bjarni er útibússtjóri hjá Byr sparisjóði. Hann starfaði áður sem forstöðumaður hjá GoPro-Landsteinum á Navision-skrifstofum fyrirtækisins í Danmörku og Þýskalandi og stýrði þá m.a. teymum sölu- og markaðsfólks. Hann hefur stunað kennslu á vegum Byr sparisjóðs, HR og HA.
Tími:  18. og 19. nóvember  kl. 8.30- 11.30
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Verð:  
kr. 12.900,- (kr. 6.450,- greiddar úr Starfsmenntasjóðnum*)
Skráning
:  linda@fis.is

 


 




*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá FÍS ef stigaeign er fyrir hendi.