Evrópuröðin - fimm fundir haldnir á vordögum 2009 um Evrópumál
Fyrsti fundur: Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Talnakönnunar. Gerði hann góð skil á gjaldmiðlamálum og ESB.
Annar fundur: Kynning á niðurstöðu Outcome könnunar um afstöðu félagsmanna í FÍS til upptöku Evru og inngöngu í Evrópusambandið. Farið var yfir niðurstöðurnar og hvaða þýðingu þær hafa á afstöðu félagsins í Evrópumálum
Þriðji fundur: Stefán Már Stefánsson lagaprófessor mjög fróðlegt erindi um þann lagaramma sem er í kringum samningaviðræður við ESB
Fjórði fundur: Aðalsteinn Leifsson: Fiskveiði, landbúnaðar og ESB - um hvað er hægt að semja og hvað ekki? ESB í orði og á borði. Friðrik Jónsson: ESB er eitthvað að óttast?
Fimmti fundur: Þar sátu fyrir svörum forsvarsmenn fjórflokkanna þau Árni Páll Árnason frá Samfylkingu, Árni Þór Sigurðsson frá Vinstri Grænum, Siv Friðleifsdóttir frá Framsóknarflokki og Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki. Öll gerðu þau grein fyrir afstöðu sinna flokka til aðildarviðræðna við ESB og þeim rökum sem þar liggja að baki.











