Samsstarfsamningar


Félag atvinnurekenda og Háskólinn í Reykjavík

Félag atvinnurekenda og lagadeild Háskólans í Reykjavík (HR) undirrituðu á árinu 2009 samstarfssamning um starfsnám. Samningurinn felur í sér að Félag atvinnurekenda tekur á móti allt að 2 nemendum í meistaranámi við lagadeild HR í starfsnám. Námsþróunarráð lagadeildar HR metur umsóknir nemenda til starfsnámsins í samráði við Félag atvinnurekenda. Það skilyrði er sett að nemandi vinni undir leiðsögn að viðfangsefnum sem eru til þess fallin að auka þekkingu og hæfni til að vinna að úrlausn lögfræðilegra verkefna.

 

Samstarfið er Félagi atvinnurekenda mikið ánægjuefni og bindur félagið miklar vonir við þetta verkefni. Er það von félagsins að eiga frekara samstarf við HR og aðra háskóla í framtíðinni.

 

Síðar á árinu var einnig undirritaður samstarfssamningur um starfsnám milli Félags atvinnurekenda og viðskiptafræðideildar HR. Sami háttur er á umsóknarferli og starfsháttum og hjá lögfræðinemunum nema aðeins einn nemandi er tekinn inn.

 

Tölvuskólinn iSoft - þekking: Félagsmenn fá 10% afslátt af tölvu- og bókhaldsnámskeiðum og 5% afslátt af öðrum námskeiðum skólans.Sjá nánar um námskeið: http://www.isoft.is


Nemandi.is - fjarnám : Félagsmenn fá 30% afslátt af öllum námskeiðum. Tölvur og tölvunotkun eru netnámskeið sem kenna byrjendum og lengra komnum á tölvur og ýmis tölvuforrit. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi undir öruggri leiðsögn kennara, Bjartmars Kristinssonar, sem veitir aðstoð í gegnum þjónustusíma sem er opinn 9-21 alla virka daga meðan á námskeiðunum stendur. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir og er að auki kjörin leið fyrir þá sem ekki geta sótt löng námskeið og hentar að geta stundað nám að heiman eða af vinnustað. Sjá nánar: http://www.nemandi.is/


Tölvu- og verkfræðiþjónustan ehf.: Félagsmenn fá:

 

Dale Carnegie

FA og Leiðtogaþjálfun ehf. hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu um samstarf á sviði þjálfunar og námskeiða fyrir fyrirtæki innan FÍS og starfsmenn þeirra.

Yfirlýsingin felur í sér að Dale Carnegie á Íslandi getur boðið fyrirtækjum, sem eru félagar í FA, námskeið og þjálfun af ýmsu toga á 20% afslætti.