Ráðningasamningar
Atvinnurekanda er skylt að láta starfsmanni í té skriflega staðfestingu á ráðningu og ráðningarkjörum, annað hvort með sérstöku ráðningarbréfi eða gera við hann skriflegan ráðningarsamning. Samninga skal gera innan tveggja mánaða frá því að starfsmaður hóf störf og hvílir þessi skylda á atvinnurekanda. Ástæða er til að hvetja alla félagsmenn til að gera skriflega ráðningarsamninga við starfsmenn sína. Er vakin athygli á því að ef til ágreinings kemur um kaup og kjör verður öll sönnun einfaldari ef ráðningarsamningur liggur til grundvallar í samskiptum vinnuveitanda og starfsmanns. Ráðningarsamningur verður að vera í samræmi við kjarasamning og ákvæði í ráðningarsamningi um lakari rétt launamanns eru ógild samkvæmt 1. gr. laga um starfskjör launafólks nr. 55/1980.
Í ráðningarsamningi skal tilgreina eftirfarandi atriði:
- Samningsaðilar, þ.e. nöfn starfsmanns og fyrirtækis
- Vinnustaður og heimilisfang vinnuveitanda
- Titill, staða, tegund starfs eða stutt starfslýsing
- Upphaf starfs
- Lengd ráðningar sé hún tímabundinn
- Orlofsréttur
- Uppsagnarfrestur
- Mánaðar- eða vikulaun
- Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku
- Lífeyrissjóður
- Eftir atvikum, gildandi kjarasamningur
- Hlutaðeigandi verkalýðsfélag