Fræðsludagskrá Félags atvinnurekenda vorið 2010

 

 

Framundan eru mörg áhugaverð og skemmtileg námskeið hjá Félagi atvinnurekenda. Endilega kynntu þér hvað er í boði og tryggðu þér sæti. Við erum alltaf opin fyrir góðum hugmyndum og þiggjum allar ábendingar um námskeið og fyrirlestra.

Minnum á að þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.

 
Öll námskeiðin eru haldin á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið: linda@atvinnurekendur.is

 

 

MAÍ

Makaðsetning á krepputímum

Samningatækni

11. og 12. maí kl.12:30 -16:30 báða dagana (dags. óstaðfestar)

Leiðbeinandi: Aðalsteinn Leifsson forstöðumaður MBA náms og lektor við viðskiptadeild HR
- nánar auglýst síðar

Námskeið í markvissari fundum, sjö lykla þjálfun

Þriðjudaginn 11. maí kl. 8:30 - 11:30

Fjallað er um margvíslegar gerðir funda og aðferðir við að framkvæma þá. Lykilatriðin eru síðan hvernig er unnið með þær ákvarðanir sem teknar eru af hópi fundarmanna, hvort heldur þeir eru tveir, tíu eða fleiri. Góðir fundir hafa skýran tilgang þar sem allir mæta undirbúnir og hefjast handa á réttum tíma. Slíkir fundir einkennast einnig af ríkum skoðanaskiptum sem gefa tækifæri til vel ígrundaðrar ákvarðanatöku. Að geta stýrt tímasettri dagskrá og laðað fram ólík sjónarmið er færni sem er eftirsóknarverð hjá fundarstjóra. Í lok góðra funda standa allir fundargestir upp með samþykktan aðgerðalista og sameiginlegan skilning á því hvað var ákveðið og hvaða hlutverki þeir gegna gagnvart eftirfylgni fundarins. Ólíkir vinnufundir verða til umfjöllunar og munu þátttakendur gera fundaráætlun sem hentar þeirra vinnuumhverfi. Farið verður í öll hlutverk fundamanna og ýmis verkfæri reynd sem gætu hjálpað þátttakendum að gera fundi að öflugu stjórntæki. Lyklarnir sjö eru:

Verklegar æfingar eru sniðnar að hópnum og áhersla er á raunveruleg dæmi til æfinga. 

 Eftir þjálfunina ættu þátttakendur að: 

Leiðbeinandi: Gunnar  Jónatansson.  Gunnar  er framkvæmdastjóri og PEP þjálfari IBT á Íslandi. Hann hefur próf í verkefnastjórnun frá HÍ. Hann hefur starfað sem leiðbeinandi á stjórnunarnámskeiðum og hefur sérhæft sig í fundastjórn og fundaskipulagi. IBT Scandinavia sér um grunn og framhaldsþjálfun allra starfsmanna IBT og tekur Gunnar reglulega þátt í henni.
Verð: kr. 7.900,- (kr. 3.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

 

Jákvæðni, húmor og hlýlegt viðmótJákvæðni

Miðvikudaginn 19. maí kl. 12:00 - 13:00

Jákvæðni er lífsafstaða. Mikilvægt er fyrir hverja manneskju að tileinka sér jákvæða lífsafstöðu til þess að þroskast eðlilega og geta átt gjöful mannleg samskipti. Það að tileinka sér jákvæða lífsafstöðu er ákvörðun og síðan stöðug þjálfun. Við gerum oft ekki greinarmun á því að reyna að hafa áhrif á umhverfi okkar með athugasemdum (gagnrýni) og að verða neikvæð. Nauðsynlegt er að þekkja muninn á því að "rýna til gagns" og að "menga" umhverfi sitt með neikvæðni. Skortur á færni til að koma á framfæri athugasemdum veldur oft misskilningi og misklíð. Á sumum vinnustöðum, í fjölskyldum/vinahópum er neikvætt andrúmsloft sem margir finna fyrir en erfitt er að skilgreina. Þetta birtist í vanlíðan einstaklinga, einelti og erfiðleikum í samskiptum. Á vinnustöðum eru það einstaklingarnir sem skapa andrúmsloftið og viðmót starfsmanna er það sem viðskiptavinir skynja. Færni í mannlegum samskiptum er grundvallaratriði til að ná árangri í lífinu.


Leiðbeinandi: Edda Björgvins

 

Almennir þættir í útboðum

Fimmtudaginn 20. maí kl. 8:30 - 11:30

Námskeiðið verður á „praktískum" nótum. Markmið þess er að gera þátttakendur betur í stakk búna til að taka þátt í opinberum útboðum m.a. með því að gera tilboð þeirra markvissari og auka fjárhagslega hagkvæmni þeirra. Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við gerð tilboða í opinberum útboðum.

 

Farið verður yfir eftirfarandi:

Leiðbeinandi: Páll Rúnar M. Kristjánsson hdl. Páll hefur víðtæka reynslu á sviði opinbera innkaupa. Hann er stundakennari í verktaka- og útboðsrétti við lagadeild Háskólans í Reykjavík, situr í ritnefnd hins virta alþjóðlega fræðirits Public Procurement Law Review og stundar LL.M nám á sviði opinbera innkaupa við Nottingham Háskóla undir leiðsögn Professor Sue Arrowsmith. Páll er auk þess yfirlögfræðingur Félags atvinnurekenda.

 

Verð: kr. 6.500,- (kr. 3.250,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

 


 

Félag atvinnurekenda er í samstarfi við eftirtalin fyrirtæki:


Tölvuskólinn iSoft - þekking: Félagsmenn fá 10% afslátt af tölvu- og bókhaldsnámskeiðum og 5% afslátt af öðrum námskeiðum skólans.Sjá nánar um námskeið: http://www.isoft.is

 


Nemandi.is - fjarnám : Félagsmenn fá 30% afslátt af öllum námskeiðum. Tölvur og tölvunotkun eru netnámskeið sem kenna byrjendum og lengra komnum á tölvur og ýmis tölvuforrit. Námskeiðin fara öll fram í fjarnámi undir öruggri leiðsögn kennara, Bjartmars Kristinssonar, sem veitir aðstoð í gegnum þjónustusíma sem er opinn 9-21 alla virka daga meðan á námskeiðunum stendur. Nám í gegnum netið er frábær leið fyrir þá sem vilja stjórna náminu sjálfir og er að auki kjörin leið fyrir þá sem ekki geta sótt löng námskeið og hentar að geta stundað nám að heiman eða af vinnustað. Sjá nánar: http://www.nemandi.is/

 


Tölvu- og verkfræðiþjónustan ehf.: Félagsmenn fá:

 

 

Dale Carnegie

Félag atvinnurekenda og Leiðtogaþjálfun ehf. hafa gert með sér samstarfsyfirlýsingu um samstarf á sviði þjálfunar og námskeiða fyrir fyrirtæki innan Félags atvinnurekenda og starfsmenn þeirra.

Yfirlýsingin felur í sér að Dale Carnegie á Íslandi getur boðið fyrirtækjum, sem eru félagar í Félagi atvinnurekenda, námskeið og þjálfun af ýmsu toga á 20% afslætti.

 

Sölustjórnun

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.

EFTIRTÖLDUM NÁMSKEIÐUM ER LOKIÐ

 

Sölustjórinn 2

 

JANÚAR

Félagsfundur Félags atvinnurekenda

Fimmtudaginn 14. janúar kl. 8.30 - 10.00.
Umræðuefni:  Úrræði banka gagnvart fyrirtækjum.
Kjartan Broddi Bragason, hagfræðingur, kynnir niðurstöður athugunar sinnar á færslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Á hvaða verði voru fyrirtækjalán keypt yfir í nýju bankana? Hvaða svigrúm er til afskrifta skulda? Hvaða önnur atriði þarf að hafa í huga? Fulltrúar Íslandsbanka fjalla um þau úrræði sem bankinn hyggst bjóða og mikilvægustu þætti málsins að þeirra mati. Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka og Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs mæta á fundinn.

Félagsfundur SÍA

Fimmtudaginn 14. janúar kl. 12:00 - 13:00. Fundarefni: Yfirfærsla skrifstofu Sía til FÍS og
Nefndarstarf Sía

Sölustjórnun

Miðvikudaginn 20. og fimmtudaginn 21. janúar kl. 8:30 - 11:30 (fyrirlesari forfallaðist,  fært til 17. og 18. febrúar). Markvisst sölustarf er hverju fyrirtæki nauðsynlegt. Þjálfun sölumanna skiptir þar miklu. Ekki er síður mikilvægt að hugað sé vel að stjórnun sölu með markmiðasetningu, öruggri framkvæmd sölustefnu og markvissri eftirfylgni.
Hentar m.a. fyrir sölu- og markaðsfólk.
Dagskrá:

Kennari/leiðbeinandi:  Bjarni Þór Þórólfsson. Bjarni er með M.Sc. í stjórnun og markaðfræði frá Copenhagen Business School. Bjarni starfar sem útibússtjóri hjá Byr sparisjóði. Hann starfaði áður sem forstöðumaður hjá GoPro-Landsteinum á Navision-skrifstofum fyrirtækisins í Danmörku og Þýskalandi og stýrði þá m.a. teymum sölu- og markaðsfólks. Hann hefur stundað kennslu á vegum Byr sparisjóðs og kennt við HR og HA.
Verð:  kr. 12.900,- (kr. 6.450,- greiddar úr Starfsmenntasjóðnum*)

Félagsfundur Félags atvinnurekenda

Fimmtudaginn 28. janúar kl. 8:30 - 10:00
- nánar auglýst síðar

FEBRÚAR

Almennir hættir

Skattamál

Fimmtudaginn  4. febrúar  kl. 8:30 - 10:00
Á nýliðnu ári, einkum undir lok ársins, voru gerðar umfangsmiklar breytingar á skattalögum bæði á efnisreglum og reglum er lúta að uppbyggingu skattkerfisins. FÍS og KPMG hafa tekið höndum saman og sett saman fræðslufund fyrir félagsmenn. Fjallað verður um helstu efnisbreytingar á tekjuskattslögum og þá aðallega um þær breytingar er lúta að skattskilum fyrirtækja og skilaskyldu þeirra í staðgreiðslu af greiðslum sem þau inna af hendi, þ.m.t. af vaxtagreiðslum úr landi. Sýnd verða dæmi um áhrif breytinganna. Jafnframt verður fjallað um skyldur félaga við að leiða fram auðlegðarskattsstofn hluthafa (manna).

Ætlað er að stuðla að betri yfirsýn félagsmanna á þær miklu breytingar sem orðið hafa og framundan eru í innlendri skattheimtu. Við vonum að þetta framtak mælist vel fyrir og sem flestir sjái sér fært að nýta þetta einstaka tækifæri. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að vera vakandi fyrir breytingum á sviði skattheimtu.

Fyrirlesari: Sigurjón Högnason lögfræðingur hjá skattasviði KPMG á Íslandi.
Tími: Fimmtudaginn 4. febrúar kl. 8:30 - 10:00
Haldið á 9. hæð í Húsi verslunarinnar
Skráning:
linda@fis.is
Léttur morgunverður í boði. 

 
Aðalfundur Félags atvinnurekenda

Aðalfundur Félags atvinnurekenda verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar í húsakynnum Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar.

Kl. 14:00 - Skráning

Fundarsetning

Kl. 14:15 - Ræða Margrétar Guðmundsdóttur, formanns Félags atvinnurekenda 

Kl. 14:20

 

Ísland í alþjóðasamfélaginu. Hvaðan komum við? Hvar erum við? Hvert stefnum við?

    
Ræðumenn: 

Kl. 16: 00  - Almenn aðalfundarstörf.

 Kvennaráðstefna

Skýrsla stjórnar

Ársreikningar 2009

Fjárhagsáætlun 2010

Lagabreytingar

Kjör til stjórnar

Önnur mál

Fundarslit  

 

Í lok fundar er mótttaka í boði FÍS

 

Smellið hér til að sjá meira um aðalfund

 

Sölu- og þjónustunámskeið  - Að gera sitt besta á hverjum degi

Þriðjudaginn 16. febrúar kl. 8:30 - 11:30
Árangur í sölumennsku og nútíma sölutækni byggja á því að seljandinn sé virkur og geri sér grein fyrir því að árangur hans er undir honum sjálfum kominn, ekki viðskiptavininum eða fyrirtækinu sem hann vinnur hjá. Viðskiptavinir vilja ekki láta selja sér en þeir vilja gjarnan kaupa.  Sölufólk selur ekki aðeins vörur og þjónustu heldur líka viðhorf og trú á framtíðina. Góður sölumaður er alltaf í "stuði", trúir á sjálfan sig og þá vöru eða þjónustu sem hann selur viðskiptavinunum. Þetta á ekki síst við þegar þeir eru með vindinn í fangið. Kynntar verða nýjar hugmyndir í sölumennsku og þjónustu við viðskiptavini.

Meðal þess sem tekið verður fyrir er:

Í harðri samkeppni um hylli neytenda geta ýmis smáatriði ráðið úrslitum um það hvaða orðspor fer af þjónustu fyrirtækis.
Leiðbeinandi: Gísli Blöndal. Gísli hefur  starfað sjálfstætt sem ráðgjafi, námskeiðshaldari og fyrirlesari jafnframt því að annast almenningstengsl og ýmis átaksverkefni. Hann hefur m.a. leiðbeint á námskeiðum hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, Símennt, Leiðtogaskólanum og fjölda fyrirtækja og stofnana. Gísli er þekktur fyrir létta og hressilega framgöngu og hann talar gjarnan tæpitungulaust um menn og málefni.Verð: kr. 5.900,- (kr. 2.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

Sölustjórinn 1

Sölustjórnun

Miðvikudaginn 17. og fimmtudaginn 18. febrúar kl. 8:30 - 11:30

Markvisst sölustarf er hverju fyrirtæki nauðsynlegt. Þjálfun sölumanna skiptir þar miklu. Ekki er síður mikilvægt að hugað sé vel að stjórnun sölu með markmiðasetningu, öruggri framkvæmd sölustefnu og markvissri eftirfylgni.
Hentar m.a. fyrir sölu- og markaðsfólk.
Dagskrá:


Kennari/leiðbeinandi:  Bjarni Þór Þórólfsson. Bjarni er með M.Sc. í stjórnun og markaðfræði frá Copenhagen Business School. Bjarni starfar sem útibússtjóri hjá Byr sparisjóði. Hann starfaði áður sem forstöðumaður hjá GoPro-Landsteinum á Navision-skrifstofum fyrirtækisins í Danmörku og Þýskalandi og stýrði þá m.a. teymum sölu- og markaðsfólks. Hann hefur stundað kennslu á vegum Byr sparisjóðs og kennt við HR og HA.
Verð:  kr. 12.900,- (kr. 6.450,- greiddar úr Starfsmenntasjóðnum*)


Markaðssetning á krepputímum og breytingar á neytendahegðun: Tækifæri og ógnanir

Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 8:30 - 11:30

Námskeiðið fjallar um það hvernig best er að nota mismunandi markaðsboðleiðir til að skila fyrirtækjum sem mestu í formi hagnaðar - til dæmis í formi söluaukningar, varðveislu á markaðshlutdeild eða til verndunar á söluverði. Farið verður í hvernig best er að haga markaðsmálum á krepputímum, hvar skynsamlegt getur verið að skera niður fjármagn og hvar ekki. Einblínt verður á fyrirtæki í verslun, svo sem eins og heildsölu, smásölu, inn- og útflutningi.

Leiðbeinandi: Dr. Valdimar Sigurðsson, Nova dósent í markaðsfræði og forstöðumaður rannsókna og doktorsnáms við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Valdimar er með doktorspróf (Ph.D.) í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði frá Cardiff University, Bretlandi.
Verð: kr. 7.900,- (kr. 3.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

 

 

 MARS

Félagsfundur FÍS


„Forysta sterkrar liðsheildar"  - vinnustofa í samstarfi við Dale Carnegie á Íslandi

Fimmtudaginn 4. mars kl. 10:00 - 12:00
Félag atvinnurekenda og Dale Carnegie bjóða uppá vinnustofu þar sem þátttakandi kynnist aðferðum Dale Carnegie að skapa eldmóð og auka árangur fyrirtækja.

 
Í þessari vinnustofu er  greint hvernig leiðtogar taka styrkleika einstaklinganna í hópnum og gera þá að styrkleikum hópsins.  Skoðaðar eru áskoranir þess að leiða sterka liðsheild og sértækar leiðir til að takast á við mál sem upp koma þegar þátttakandi er í forystu fyrir hæfileikaríka og sterka einstaklinga sem vinna saman í teymi.
Við lok þessarar vinnustofu verða þátttakendur færir um að:

Leiðbeinandi : Unnur Magnúsdóttir frá Dale Carnegie á Íslandi.


Félag atvinnurekenda og DC er í samstarfi sem felur í sér að DC á Íslandi býður fyrirtækjum, sem eru félagar í Félagi atvinnurekenda, 20% afslátt af námskeiðum og þjálfun af ýmsu toga.



Breytingastjórnun

Fimmtudaginn 18. mars kl. 8:30 - 11:30


Fjallað er um helstu þætti sem hafa áhrif á starfsanda fyrirtækja í breytingaferli, bæði frá fræðilegu og verklegu sjónarhorni. Markmið námskeiðsins er að stjórnendur öðlist skilning á mismunandi viðbrögðum starfsmanna; farið er rækilega í mikilvægi viðhorfa til breytinga almennt og á vinnustað. Meðal efnisatriða námskeiðsins er leiðtogahæfni í eigin lífi, breytingastjórnun, persónuleikamat og kynning á Meyers-Brigg persónuleikaprófinu, þar sem sérstaklega er fjallað um kenningu um mismunandi viðhorf til breytinga, sem prófið byggir á. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, verkefna og umræðu.
Ætlað stjórnendum, starfsmannastjórum, sérfræðingum í mannauðsstjórnun og öðrum sem bera ábyrgð á breytingarferli innan fyrirtækja og stofnana.

Leiðbeinandi
: Árelía Guðmundsdóttir, dósent við viðskiptafræðideild HÍ
Verð: kr. 9.500,- (kr. 4.750,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

 

 

"Súpuspjall" um aðgerðir banka gagnvart fyrirtækjum


Þriðjudaginn 22. mars kl. 12.00

 

"Súpuspjall" um aðgerðir (eða aðgerðaleysi) banka gagnvart fyrirtækjum.

 

 

Ekki verða formlegar kynningar eða fyrirlestrar - heldur mun undirritaður leiða umræður. Markmiðið er að skiptast á skoðunum um málið og velta upp leiðum fyrir Félag atvinnurekenda til þess að koma þessum málum í betri farveg.

 

Umræðupunktar:

 

 

1) Eignarhald banka á atvinnufyrirtækjum - skörun lánahagsmuna og eignarhaldshagsmuna sem

 

 2) Ósanngjarnir skilmálar nýrra lánasamninga - yfirgangur banka

 

 3) Samkeppnishamlandi ákvæði í lánasamningum,

 

 4) Svigrúm til afskrifta með hliðsjón af yfirfærsluverðmæti lánasafna frá gömlum bönkum til hinna nýju

 

 

 

Fréttatilkynning frá því 5. mars 2010

 

APRÍL

Kúlulán

Innkaupastjórnun

Miðvikudaginn 14. apríl kl. 8:30 - 11:30.

Kynntar verða nýjungar í innkaupafræðum, farið yfir ýmis atriði tengd innkaupastjórnun fyrirtækja og hvers vegna mikilvægt sé að veita innkaupastjórnun aukið vægi í rekstrarumhverfi dagsins í dag. Fjallað verður um það hvernig innkaupafólk getur undirbúið ákvarðanir sínar beturr, sparað kostnað og bætt nýtingu fjármagns.

 

Einnig verður fjallað um mikilvægi þess að byggja upp gott langtímasamband við birgja. Komið verður inn á stjórnun aðfangakeðjunnar og helstu strauma og stefnur á því sviði

 

Leiðbeinandi: Thomas Möller, stundakennari í Vörustjórnun við Viðskiptadeild HR og framkvæmdastjóri RÝMIS ehf.
Verð: kr. 7.900,- (kr. 3.950,- greitt úr Starfsmenntasjóðnum*)

Sölustjórnun

Fimmtudaginn 15. og föstudaginn 16. apríl kl. 8:30 - 11:30.

 

Markvisst sölustarf er hverju fyrirtæki nauðsynlegt. Þjálfun sölumanna skiptir þar miklu. Ekki er síður mikilvægt að hugað sé vel að stjórnun sölu með markmiðasetningu, öruggri framkvæmd sölustefnu og markvissri eftirfylgni. Vegna mikillar eftirspurnar er námskeiðið haldið í 3ja sinn.


Hentar m.a. fyrir sölu- og markaðsfólk.

Dagskrá:


Kennari/leiðbeinandi:  Bjarni Þór Þórólfsson. Bjarni er fjármálastjóri Reykjavík Geothermal. Hann starfaði sem útibússtjóri hjá Byr sparisjóði. Hann starfaði áður sem forstöðumaður hjá GoPro-Landsteinum á Navision-skrifstofum fyrirtækisins í Danmörku og Þýskalandi og stýrði þá m.a. teymum sölu- og markaðsfólks. Bjarni er með M.Sc. í stjórnun og markaðfræði frá Copenhagen Business School. Hann hefur stundað kennslu á vegum Byr sparisjóðs og kennt við HR og HA.
Verð:  kr. 12.900,- (kr. 6.450,- greiddar úr Starfsmenntasjóðnum*)


Eru kúlulán hættuleg? - Vaxtaútreikningar og skuldabréf

Þriðjudaginn 20. apríl kl.8:30 - 10:00

Farið verður yfir helstu aðferðir við vaxtaútreikninga og áhrif verðtryggingar skoðuð. Helstu tegundir skuldabréfa kynntar. Hvað þýða mismunandi vextir í mismunandi gjaldmiðlum. Áhersla lögð á að tengja umfjöllun við rekstur fyrirtækja og einnig heimilisbókhaldið.

Hentar öllum sem ekki vinna með vexti og skuldabréf í hverri viku.


Leiðbeinandi
: Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. 

 

Sölustjórnun

*Þeir starfsmenn fyrirtækja sem eru í VR fá sjálfkrafa styrk úr Starfsmenntasjóði verslunarinnar þegar þeir sækja námskeið hjá Félagi atvinnurekenda ef stigaeign fyrirtækja er fyrir hendi.