Neytendaréttur



Hugtakið galli

 

Söluhlutur skal, hvað varðar tegund, magn, gæði, aðra eiginleika og innpökkun, fullnægja þeim kröfum sem leiðir af samningi. Hafi hlutur ekki þessa eiginleika til að bera telst hann vera gallaður.

 

Tilkynning galla 

 

Neytandi skal bera fyrir sig galla innan 2 mánaða eftir að hann varð hans var. Ef neytandi aftur á móti ber ekki fyrir sig galla innan 2 ára frá afhendingu, fellur allur réttur hans til slíks niður. Á því er undantekning hvað varðar saknæma háttsemi seljanda og söluhlut sem ætlaður er verulega lengri endingartími en almennt gerist, en þá er hámarksfresturinn 5 ár.

 

Sönnunarbyrði

 

Neytandi ber sönnunarbyrðina fyrir því að söluhlutur sé haldinn galla og ber honum að sanna tvennt. Annars vegar að hluturinn sé haldinn galla og hins vegar að hann hafi verið það við afhendingu. Frá þessu síðarnefnda gildir undantekningarregla sem hefur þá þýðingu að ef neytandi sannar galla innan 6 mánaða, þarf seljandi að sanna að gallinn hafi ekki verið fyrir hendi við afhendingu söluhlutarins. Sérstök athygli skal vakinn á því að neytandi þarf aftur sem áður ávallt að sanna að söluhlutur sé haldinn galla í skilningi neytendalaga.

 

2 eða 5 ára ábyrgð?

 

Reglan um lengri endingartíma er í samræmi við reglu kaupalaga þar sem kveðið er á um 5 ára frest til að bera fyrir sig galla við kaup á byggingarefni sem ætlað er verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti. Við mat á því hvað falli undir lengri endingartíma ber að líta til þess hvers neytandi mátti vænta við kaup á slíkum hlut. Framleiðendur söluhluta hafa ólík markmið við framleiðslu hluta hvað varðar endingartíma þeirra. Endurspeglast þetta m.a. í verði og markaðssetningu hlutanna. Félag atvinnurekenda lítur því svo á að sérreglan um verulega lengri endingartíma gildi einungis um söluhluti sem teljast mættu til lífstíðareignar skv. því hvernig þeir eru markaðssettir eða skv. venju. Það er því ótæk nálgun að þar undir falli sjálfkrafa söluhlutur sem ætlaður er lengri endingartími en 2 ár.

 

 

 

 

 

 

Hugtakið galli