SÍA - Samband íslenskra auglýsingastofa
var stofnað árið 1978 af nokkrum fremstu auglýsingastofum landsins sem þá störfuðu. Tilgangur félagsins er fólginn í að efla faglega hæfni aðildarfyrirtækjanna til þess að veita sem bestu þjónustu á öllum sviðum auglýsinga- og markaðsmála. Átta af stærstu auglýsingastofum landsins auk tveggja birtingastofa er í sambandinu og starfar SÍA sem málsvari og fulltrúi þessara fyrirtækja í öllum helstu sameiginlegu hagsmunamálum þeirra.
Stjórn SÍA:
Magnús Bjarni Baldursson, AM auglýsingamiðlun
Magnús Loftsson, Hvíta húsið
Hafsteinn S. Hafsteinsson, Ennemm
Aðildarfyrirtæki:
Pipar/TBWA
H:N Markaðssamskipti