Séreignalífeyrissparnaður

 

 

 

Í kjarasamningum hefur verið samið um sérstakt mótframlag vinnuveitenda til viðbótar séreignarsjóðslífeyrisframlagi starfsmanna.

 

Framlag í séreignarsjóð er valkvætt og gildir um þá starfsmenn sem taka ákvörðun um slíkt og gera samning við lífeyrissjóð sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, með þeim fyrirvara þó að leggi starfsmaður ekki sjálfur framlag í séreignarsjóð ber vinnuveitanda að greiða 1% í slíkan sjóð vegna þessa starfsmanns. Gera má ráð fyrir að síðargreinda ákvæðið falli niður með nýjum kjarasamningum sem nú eru í vinnslu.

 

Framlag starfsmanns getur verið frá 2% upp í allt að 4%.

 

Framlag vinnuveitanda sem kemur til viðbótar er 2%.