Dagpeningar
Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis - auglýsing nr. 1/2009
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis á vegum ríkisins sem hér segir:
Almennir dagpeningar
| Flokkur og staðir | SDD | Gisting | Annað | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Flokkur 1 - Moskva, New York borg, Singapúr, Tókýó, Washington DC | SDR | 187 | 125 | 312 |
| Flokkur 2 - Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl | SDR | 159 | 106 | 265 |
| Flokkur 3 - Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barsilóna, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín | SDR | 141 | 94 | 235 |
| Flokkur 4 - Annars staðar | SDR | 125 | 83 | 208 |
Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa
| Flokkur og staðir | SDR | Gisting | Annað | Samtals |
|---|---|---|---|---|
| Flokkur 1 - Moskva, New York borg, Singapúr, Tókýó, Washington DC | SDR | 120 | 80 | 200 |
| Flokkur 2 - Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl | SDR | 102 | 67 | 169 |
| Flokkur 3 - Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Barsilóna, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín | SDR | 90 | 60 | 150 |
| Flokkur 4 - Annars staðar | SDR | 80 | 54 | 134 |
Ákvörðun þessi gildir frá og með 1. mars 2009. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2008 dagsett 30. maí 2008.
Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2010
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
- Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 23.850
- Gisting í einn sólarhring kr. 15.100
- Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 8.750
- Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 4375
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2010.
Ennfremur er vakin athygli á umburðarbréfi nefndarinnar, þar sem nánar er kveðið á um tilhögun greiðslu dagpeninga til ríkisstarfsmanna. Umburðarbréfið ásamt auglýsingu ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er að finna á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið er eftirfarandi www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.
Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum. Sjá upplýsingar um um dagpeninga hjá ríkisskattstjóra og upplýsingar um dagpeninga - skattmat hjá ríkisskattstjóra.