Fæðingarorlof

L E I Ð B E I N I N G A R

um fyrirkomulag fæðingarorlofs

 

 

Gildistaka. Um töku fæðingarorlofs, frumættleiðingu eða töku barns yngra en 8 ára í varanlegt fóstur gilda frá 1. janúar n.k. lög nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof.

 

Launagreiðslur. Lögin tryggja að starfsmenn sem starfað hafa í a.m.k. 25% starfi í 6 mánuði á innlendum vinnumarkaði, fái greidd 80% af meðaltali heildarlauna tiltekins viðmiðunartímabils í fæðingarorlofi (13. gr.). Nýr sjóður, Fæðingarorlofssjóður, sem verður í umsjá og afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, mun annast launagreiðslurnar (4. gr.) og fara því engar launagreiðslur fram hjá launagreiðanda á meðan. Fæðingarorlofsgreiðslur þær sem sjóðurinn innir af hendi, eru heildargreiðslur. Ráðningarsamband milli starfsmanns og vinnuveitanda helst óbreytt í fæðingarorlofi eftir því sem ráðningarsamningur segir fyrir um (29. gr.)

 

Lengd fæðingarorlofs. Foreldrar eiga hvort um sig sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að 3 mánuði (8. gr.). Auk þess eiga foreldrar sameiginlegan rétt í 3 mánuði til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða þau skipt með sér. Skilyrt er í lögunum að móðir skuli vera í fæðingarorlofi fyrstu 2 vikurnar eftir fæðingu barns (8. gr., 3. mgr.) Sameiginlegt fæðingarorlof beggja foreldra verður þannig 7 mánuðir. Taki faðir ekki sinn hluta, fellur hann eða sá hluti sem ekki er tekinn, niður. Sama á við, taki móðir ekki alla 3 mánuðina sem hún á sjálfstæðan rétt á.

 

Tilkynning um fæðingarorlof. Starfsmaður skal tilkynna vinnuveitanda skriflega a.m.k. 8 vikum fyrir fyrirhugaðan fæðingardag barns hvenær hann ætlar að hefja töku fæðingarorlofs (9. gr.). Í tilkynningunni skal m.a. tilgreina upphafsdag, lengd, tilhögun og fyrirhugaða skiptingu sameiginlegs fæðingarorlofs foreldra barns. Eyðublað fyrir tilkynningu hefur verið útbúið og er það að finna hér þó er móður heimilt að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag (8. gr.).

 

Sönnun á forsjá. Vinnuveitandi getur krafist þess að foreldri sanni að það fari með forsjá barnsins, telji hann þess þörf (9. gr.).

 

Taka fæðingarorlofs. Starfsmaður á rétt á að taka fæðingarorlof í einu lagi. Honum er þó heimilt með samkomulagi við vinnuveitanda að haga töku þess með öðrum hætti, m.a. með lengingu og breyttu launahlutfalli (10. gr.). Þá er starfsmanni nú heimilt að vera að hluta til í fæðingarorlofi og að hluta til í starfi og gætu foreldrar þannig t.d. verið í fæðingarorlofi á sama tíma. Einnig er gefinn kostur á að taka fæðingarorlof þannig að það skiptist niður á fleiri tímabil en þó aldrei styttri tíma en viku í senn. Töku fæðingarorlofs skal þó vera lokið, þegar barn nær 18 mánaða aldri.

 

Umsókn til Tryggingastofnunar. Mjög áríðandi er að starfsmaður og vinnuveitandi gangi tímanlega frá tilhögun fæðingarorlofs og á það bæði við um móður og föður. Síðan þarf starfsmaður að sækja um fæðingarorlof til Tryggingastofnunar 6 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns (15. gr.) á eyðublaði sem má nálgast á vefsíðu Tryggingastofnunar http://www.tr.is/. Þar er einnig að finna frekari leiðbeiningar.

 

Sömuleiðis eru upplýsingar á vefsíðu félagsmálaráðuneytisins:

 

http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/faedingarorlof/upplysingar/

Andvanafæðing og fósturlát. Foreldrar eiga sameiginlega rétt á fæðingarorlofi í allt a 3 mánuði við andvanafæðingu eftir 22 vikna meðgöngu en í allt að 2 mánuði við fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu (12. gr.).

 

Fjölburafæðing. Foreldrar eiga sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs um 3 mánuði fyrir hvert barn umfram eitt (16. gr.).

 

Veikindi barns eða móður. Um þetta gilda svipaðar reglur og áður (17. gr.).

 

Uppsöfnun og vernd réttinda. Foreldri greiðir í lífeyrissjóð af fæðingarorlofsgreiðslum. Einnig er heimilt að greiða í séreignarsjóð (14. gr.). Fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, s.s. rétti til orlofstöku og lengingar orlofs skv. kjarasamningum, starfsaldurshækkana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og réttar til atvinnuleysisbóta.

 

Öryggi og heilbrigði á vinnustöðum. Sérstök athygli skal vakin á 11. gr. laganna sem fjallar um ráðstafanir sem nauðsynlegar kunna að vera til að tryggja öryggi og heilbrigði þungaðrar konu, konu sem hefur nýlega alið barn eða konu sem er með barn á brjósti. Þar kemur m.a. fram að þurfi að veita þungaðri konu leyfi frá störfum t.d. á meðgöngu af slíkum ástæðum, á hún rétt á sömu greiðslum þann tíma og í fæðingarorlofinu sem lengist þá sem leyfinu nemur, eins þótt um marga mánuði sé að ræða.