Um Félag atvinnurekenda

Félag atvinnurekenda er félag fyrirtækja úr öllum greinum verslunar þ.e. innflutningi, útflutningi, umboðssölu, heildverslun og smásölu. Sem hagsmunasamtök er það okkar megin hlutverk að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart hinu opinbera og hafa áhrif á vöxt og viðgang þessarar mikilvægu atvinnugreinar sem verslunin er. Félagið sinnir þessu hlutverki m.a. með umsögnum um lagafrumvörp og reglugerðir og einnig á fundum með fulltrúum ráðuneyta, þingmanna og stofnana hins opinbera.

Félag atvinnurekenda fer einnig með gerð kjarasamninga og semja við Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Landssamband íslenskra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsamband Íslands og Lyfjafræðingafélag Íslands. Í tengslum við þau mál þá veita félagið félagsmönnum ókeypis lögfræðilega þjónustu um túlkun kjarasamninga og aðstoð í ágreiningsmálum er upp kunna að koma á vinnustað.
Félag atvinnurekenda miðlar viðskiptasamböndum og sinnir kynningarstarfi á erlendum mörkuðum. Félagið tekur þátt í erlendum vörusýningum og sér um móttöku erlendra viðskiptasendinefnda.

Félag atvinnurekenda hefur á starfstíð sinni komið að ýmsum átaksverkefnum m.a. byggingu þriggja heildsölumiðstöðva þ.á.m. er Sundaborgin, stofnun Verslunarbanka Íslands og Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Nær okkur í sögunni má nefna stofnun Gripið og greitt hf., Nýju skoðunarstofuna hf. (nú hluti af Frumherja hf.) og Global Refund á Íslandi ehf.

Meðal þeirrar þjónustu sem félagið veitir félagsmönnum er afsláttur á auglýsingum hjá fjölmiðlum og innlendum flugfargjöldum, einnig hagkvæm fjárfestingarlán í gegnum Fjárfestingasjóð stórkaupmanna og miðlun viðskiptasambanda.