Saga Félags atvinnurekenda

    

Félag atvinnurekenda, sem upphaflega hét Félag íslenskra stórkaupmanna, var stofnað 21. maí árið 1928 í Reykjavík.  Það voru 20 stórsöluverslanir,  eins og það var nefnt, sem ákváðu að stofna með sér félagsskapinn.  Fyrsta stjórn var þannig skipuð; Arent Classen formaður ( Ó. Johnson & Kaaber), Hallgrímur Benediktsson ( H. Ben), Björn Ólafsson (Vífilfell), Ingimar Brynjólfsson (I. Brynjólfsson & Kvaran) og Magnús Th.S. Blöndal frá samnefndu fyrirtæki.  Í varastjórn voru kjörnir þeir John Fenger (Nathan & Olsen) og Kristján Skagfjörð (Kristján Ó. Skagfjörð).

 

 

Formenn frá upphafi:

 

Arent Claessen  1928-1934
Eggert Kristjánsson  1934-1949
Egill Guttormsson  1949-1953
Karl Þorsteins  1953-1955
Páll Þorgeirsson  1955-1959
Kristján G.Gíslasson  1959-1963
Hilmar Fenger  1963-1967
Björgvin Schram  1967-1971
Árni Gestsson  1971-1975
Jón Magnússon  1975-1979
Einar Birnir  1979-1983
Torfi Tómasson  1983-1987
Haraldur Haraldsson  1987-1991
Birgir Rafn Jónsson  1991-1995
Jón Ásbjörnsson  1995-1999
Haukur Þór Hauksson  1999 - 2003
Pétur Björnsson 2003 - 2007
Skúli Björnsson 2007 -  2009
Margrét Guðmundsdóttir 2009 -  

Framkvæmdastjórar:

 

Carl Proppé  1929-1938
Henrik Sv Björnsson  1949-1950
Einar Ásmundsson  1950-1956
Hafsteinn Sigurðsson  1956-1969
Júlíus Sæberg Ólafsson  1969-1977
Jónas Þór Steinarsson  1977-1982
Torben Friðriksson  1982-1984
Árni Reynisson  1984-1991
Stefán S.Guðjónsson  1991-2001
Andrés Magnússon  2001- 2008
Knútur Signarsson 2008 - 2009
Almar Guðmundsson 2009 -

 

 

Frá stofnun félagsins hefur baráttan fyrir auknu verslunarfrelsi og afnámi hvers konar viðskiptahafta verið stærsta baráttumál félagsins. Þó að frjálsræði í viðskiptum hafi verið meira og minna ríkjandi um það leiti þegar félagið var stofnað þá breyttist það skömmu seinna eða í kjölfar kreppunnar miklu. Fyrstu áratugir félagsins fóru því í baráttuna fyrir afnámi innflutnings- og verðlagshafta. Á allra fyrstu áratugunum var einnig töluverð umræða innan félagsins um “lánverslunarskilmála” þ.e. staðlaða viðskiptaskilmála á milli heildverslana/iðnrekenda og smásöluverslunar. 

 

En með nýjum tímum hafa komið ný viðfangsefni, ný vandamál að glíma við. Hér að neðan verður stiklað á stóru í sögu hagsmunbaráttu félagsins síðustu 30 árin;