Starfsmenntasjóður

 

Starfsmenntasjóður verslunarinnar var stofnaður á grundvelli kjarasamnings á milli Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og LÍV annars vegar og Félags atvinnurekenda hins vegar sem tók gildi 1. febrúar árið 2000.

Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks við störf í verslun, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma.

Skv. úthlutunarreglum sjóðsins gefst atvinnurekendum kostur á því að sækja um styrki til sjóðsins ársfjórðungslega og skal skilafrestur umsókna auglýstur til fyrirtækja tveimur mánuðum fyrir hvern umsóknarfrest.



Stjórn sjóðsins skipa:

 

Umsókn um styrk vegna námsgagnagerðar

Umsókn um styrk vegna námskeiða