Starfsreglur
Starfræktur skal starfs- og endurmenntunarsjóður með það að markmiði að stuðla að aukinni færni og menntun verslunarmanna. Sjóðurinn skal einnig hafa það að markmiði að stuðla að aukinni framleiðni íslenskra verslunarfyrirtækja, sem starfa í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Greiðslur úr sjóðnum geta einnig staðið undir gerð námsefnis og stuðla að fjölbreyttu námsframboði fyrir atvinnugreinina.
Félagsmenn VR og annarra aðildarfélaga LÍV skulu sækja um styrk beint til stéttarfélaganna. Fyrirtæki sem aðild eiga að Félagi atvinnurekenda skulu beina umsóknum um styrki til Félags atvinnurkenda. Stjórn sjóðsins skal skipuð tveimur aðilum frá hvorum samningsaðila og skal hún setja sjóðnum starfsreglur um hvernig greiðslum úr sjóðnum skal háttað.
Framlag vinnuveitenda í sjóðinn skal vera 0,2% af sama launastofni og lífeyrissjóðsiðgjöld eru reiknuð. Stéttarfélögin skulu greiða mótframlag, sem nemur 0,05% af sama stofni.
Verði sjóðurinn lagður niður skulu þeir fjármunir sem kunna að verða eftir í honum renna til aðila samnings þessa í sama hlutfalli og þeir hafa greitt í hann.
Heimilt er að endurskoða ákvæðið á samningstímanum m.a. með tilliti til ákvæðis 3. mgr. þessarar greinar.
Styrkir til félagsmanna
- 1.Félagsmenn VR eða annarra aðildarfélaga LÍV sem greitt hefur verið af til sjóðsins á síðustu 12 mánuðum geta sótt um starfsmenntastyrk til sjóðsins og umsóknir þeirra eru flokkaðar eftir því hvort um tómstundanám eða starfsnám er að ræða. Tómstundanám er eingöngu styrkt af framlagi stéttarfélaganna. Starfsnámsstyrkir eru greiddir af þeim hluta sem er framlag fyrirtækjanna.
- 2.Þeir sem eru á atvinnuleysisbótum geta sótt um styrk til sjóðsins greiði þeir félagsgjald til VR eða annarra aðildarfélaga LÍV. Ellilífeyrisþegar eiga rétt á tómstundastyrk einu sinni á ári sbr. 5. grein í allt að 36 mánuði frá því að greitt var af þeim síðast til sjóðsins og greiðast þeir styrkir af framlagi stéttarfélaganna.
- 3.Upphæð styrksins fer eftir stigaeign. Félagsmaður vinnur sér inn eitt stig fyrir hvern mánuð sem greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn miðað við kr. 75.000 - 180.000 í laun og er það að jafnvirði kr. 1.000 styrks. Dæmi: ef greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn síðustu 3 ár, á starfsmaðurinn inni 36 stig sem er að jafnvirði styrks að upphæð kr. 36.000. Félagsmenn sem eru með lægri laun en kr. 75.000 ávinna sér réttindi hlutfallslega miðað við laun. Dæmi: Ef félagsmaður hefur kr. 60.000 í tekjur á mánuði fær viðkomandi 0,8 stig á mánuði (60.000:75.000 = 0,8) það samsvarar 800 króna styrk á mánuði og kr. 9.600 á ári. Þeir sem eru með hærri tekjur en kr. 180.000 á mánuði fá hlutfallslega fleiri stig. Dæmi: ef starfsmaður hefur kr. 225.000 í tekjur á mánuði fær viðkomandi 1,25 stig á mánuði (225.000:180.000 = 1,25) það samsvarar 1.250 króna styrk á mánuði og kr. 15.000 á ári.
- 4.Starfsmenntastyrkur. Veittur er starfsmenntastyrkur eftir stigainneign, en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af námskeiðsgjaldi. Fullan styrk má nýta í fleiri en eitt námskeið. Stig dragast frá í samræmi við þá fjárhæð sem greidd er. Stjórn sjóðsins hefur heimild til að úrskurða um hvort að námskeið teljist starfstengt sem almennt er skilgreint sem tómstundanám ef sérstakar aðstæður leyfa s.s. vegna starfs viðkomandi.
- 5.Tómstundastyrkur. Veittur er styrkur til að sækja tómstundanámskeið að hámarki að fjárhæð kr. 30.000 á ári, en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af námskeiðsgjaldi. Styrkinn má nýta í fleira en eitt námskeið og stig dragast frá í samræmi við þá fjárhæð sem greidd er.
- 6.Ferðastyrkur. Sæki félagsmaður um styrk vegna starfsnáms, sem aðeins er boðið upp á utan heimabæjar viðkomandi, getur hann sótt um ferðastyrk fyrir allt að helmingi fargjalds ef vegalengdin milli heimilis og fræðslustofnunar er að lágmarki 50 km. Skila þarf inn sundurliðuðum reikningi. Stig dragast frá í samræmi við þá fjárhæð sem greidd er. Skilyrði fyrir veitingu ferðastyrks er að starfsmaður greiði sjálfur námskeiðsgjöld og ferðakostnað
Ferðist viðkomandi á eigin bíl getur hann eftir sömu reglum sótt um ferðastyrk skv. reglum Tryggingastofnunar ríkisins (kr. 19,35 á km. í mars 2007).
Hámarksferðastyrkur á ári er kr. 30.000 hvort sem um er að ræða fargjald eða kílómetragjald.
Þeir félagsmenn, sem sækja starfsnám erlendis, sem ekki er boðið upp á hérlendis, geta sótt sérstaklega um styrk sem nemur að hámarki helmingi af fargjaldi til stjórnar sjóðsins.
Ekki eru veittir ferðastyrkir vegna:
Gistingar eða uppihalds
Sölu/vörusýninga
Heimsókna í einstök fyrirtæki
Ráðstefna almenns eðlis
Starfsþjálfunar
- 7.Styrkir eru greiddir um leið og námið hefur verið greitt. Fylla þarf út umsóknareyðublað og senda það ásamt greiðslukvittun til viðkomandi stéttarfélags innan 12 mánaða frá því að greitt var til sjóðsins af viðkomandi félagsmanni
- 8.Samskipti starfsmenntasjóðanna. Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu úr starfsmenntasjóði eins stéttarfélags innan ASÍ, öðlast rétt hjá Starfsmenntasjóði verslunarinnar skv. gagnkvæmum samningum (þarf að ganga frá) eftir að greitt hefur verið vegna hans til sjóðsins í einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrri sjóðnum. Stigaeign viðkomandi er skoðuð sérstaklega eftir því hve lengi viðkomandi hefur greitt í annað félag og hve miklir styrkir hafa verið sóttir þaðan. Farið er eftir ákveðnum reiknireglum sem eru byggðar á samkomulagi við aðra starfsmenntasjóði, enda falli flutt réttindi í fyrri sjóðnum þar með niður. Þegar félagsmaður hefur fengið samþykktan réttindaflutning frá öðrum fræðslusjóði skal umsóknin að öllu öðru leyti vera afgreidd eftir úthlutunarreglum sjóðsins.
- 9.Heimilt er að fresta greiðslu styrks þar til staðfesting annarra sjóða liggur fyrir um að umsækjandi hafi ekki sótt um greiðslur þaðan. Starfsmenntasjóðurinn skal leita slíkrar staðfestingar.
- 10.Sá sem reynir að afla sér styrkja með því að gefa rangar eða villandi upplýsingar eða leynir upplýsingum missir rétt til styrks. Heimilt er að endurkrefja félagsmenn um allan styrkinn auk dráttarvaxta.
Styrkir til fyrirtækja/stéttarfélaga
11. Fyrirtæki sem greiða iðgjöld í sjóðinn eiga rétt á styrk. Fyrirtækin sækja um styrki til Félags atvinnurekenda.
12. Umsækjendur skulu fylla út þar til gert umsóknareyðublað sem hægt er að nálgast hjá Félagi atvinnurekenda, þar sem kemur m.a. fram lýsing á því fræðsluverkefni sem sótt er um styrk fyrir, skipulag þess, efnisinntak, áætlaðri framkvæmd, kostnaðaráætlun, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda. Með umsókn skal fylgja listi með nöfnum og kennitölum þeirra starfsmanna sem munu sækja námskeiðið og skal þar tilgreint hvaða stéttarfélagi viðkomandi tilheyrir ásamt greiðslukvittun.
13. Þau verkefni sem stuðla að nýsköpun í menntun fyrir starfsgreinarnar ásamt þróunarverkefnum munu njóta forgangs við styrkveitingu.
14. Styrkir til fyrirtækja verða veittir ársfjórðungslega. Stjórn sjóðsins ákveður hver úthlutunarupphæðin verður að hámarki, eftir fjárhagsstöðu sjóðsins hverju sinni. Við ákvörðun hámarksfjárhæðar skal tekið mið af úthlutun styrkja til félagsmanna VR/ LÍV. Ef fyrirtæki sækja um samtals hærri styrki en hámarksúthlutun segir til um þá skerðast styrkir til allra umsækjenda þess tímabils hlutfallslega. Við úthlutun styrkja er m.a. tekið tillit til stigagjafar sbr. 15. gr. Aldrei er greitt meira en helmingur af kostnaði við námskeiðahald. Í þeim kostnaði er ekki tekið tillit til vinnutaps né aðstöðu séu námskeiðin haldin í fyrirtækjunum sjálfum, heldur fyrst og fremst til beins útlagðs kostnaðar. Við úthlutun styrkja er m.a. tekið tillit til stigagjafar sbr. gr. Skilafrestur umsókna verður auglýstur til fyrirtækja af FÍS tveimur mánuðum fyrir hvern umsóknarfrest.
15. Fyrirtæki sem greiða til sjóðsins ávinna sér stig í hlutfalli við innborganir til sjóðsins. Stofn til útreiknings stiga eru launagreiðslur og gefa kr. 75.000 - 180.000 eitt stig en reiknast að öðru leyti hlutfallslega af launastofni. Hvert stig gefur kr. 1.000,- í námsstyrk
16. Stjórn sjóðsins er jafnframt heimilt að binda styrk frekari kvöðum.
17. Styrkumsækjandi getur fengið vilyrði fyrir styrk áður en námskeið er haldið en styrkveiting fer ekki fram fyrr en að námskeiði loknu. Í þeim tilvikum skal styrkþegi gera grein fyrir notkun styrksins á þar til gerðu uppgjörseyðublaði innan árs frá því að vilyrði var veitt, eða samkvæmt nánari ákvörðun sjóðsstjórnar Styrkinn er óheimilt að nota til annarra verkefna en sótt var um. Sé styrks ekki vitjað innan 6 mánaða frá úthlutun fellur hann niður
Aðrir styrkir og verkefni
18. Önnur verkefni stjórnar sjóðsins eru m.a. að vinna að námsefnisgerð og gerð kynningarefnis. Þá verður könnun á samvinnu við einstaka skóla á verkefnalista stjórnarinnar sem og fleiri óskilgreind atriði sem upp kunna að koma. Samningsaðilar, saman eða sitt í hvoru lagi geta sótt um styrki.
Stjórn sjóðsins
19. Reglur þessar voru samþykktar á fundi stjórnar sjóðsins 19. nóvember 2002 og endurskoðaðar 7. ágúst 2003, 19. nóvember 2003 og 16. mars 2007. Stjórn áskilur sér rétt til breytinga á reglum þessum án fyrirvara. Starfsreglurnar miðast við stöðu sjóðsins hverju sinni, þ.e. hversu mikið og hversu margir sækja um hverju sinni.